listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.isbeta
Heim/Ísland
Fleiri eignir í nágrenninu

Hús – Akureyri (utan Glerár)

Hús – Akureyri (utan Glerár)
Hús – Akureyri (utan Glerár) - Aðalmynd

Hús til sölu, 151 m²

Akureyri (utan Glerár)

3 Svefnherbergi·2 Baðherbergi

114.900.000 kr.

762.442 kr./m²

Skráð 15. sep. 2026

Um þessa auglýsingu

FS fasteignir – 571-9992 Hulduholt 5, 603 Akureyri Hulduholt 5 - Nýbygging Mjög falleg og einstaklega björt fjögurra til fimm herbergja 150,7m2 raðhús á tveimur hæðum með fallegu útsýni í Holtahverfi á Akureyri. Rúmgott og skemmtilegt hús með gólfsíðum gluggum og hátt til lofts á efri hæð. Eignin skiptist í: Neðri hæð: Forstofa, stofa, eldhús,borðstofa, baðherbergi, geymsla undir stiga og stór geymsla með útgengi út í garð. Efri hæð: Þrjú svefnherbergi , hol, lítil geymsla og baðherbergi. Neðri hæð: Forstofa ljósar flísar og dökkur rúmgóður skápur, hurð með gleri inn í íbúð. Eldhús/borðstofa/stofa er opið rými með fallegum gluggum, innfeld lýsing í lofti, eyja með eldavél og hægt að sitja við. Innréttingar eru sérsmíðaðar HTH innréttingar frá Ormsson, plasthúðaðar (CPL). Mjög falleg ljós borðplata frá Ormsson er úr 30mm þykk plasthúðuð spónarplata (HPL).80 cm Spanhelluborði með innbyggðum gufugleypi, eyjuháf, ofni með blæstri, innbyggðum ísskáp og innbyggðri uppþvottavél frá Ormsson. Útgengi er út á timburverandir bæði úr stofu og borðstofu. Baðherbergi dökk innrétting með ljósri borðpötu, spegli með ljósi. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu. Ljósar flísar á gólfi og hluta veggja. Geymsla með flísum á gólfi og útgengi út á timbur verönd. Geymsla undir stiga með flísum á gólfi. Stigi milli hæða er úr timbri, fallegur gluggi við stiga. Efri hæð: Herbergin eru þrjú öll með fataskápum og harðparketi á gólfum. Hol sem er með hárri lofthæð og útgengi út á svalir til suðurs. ( Væri hægt að breyta í herbergi) Baðherbergi með dökkri innréttingu og ljósum borðplötum, flísar á gólfi og hluta af veggjum, sturta með sturtugleri. Geymsla sem er lítil við stiga. Verandir eru fyrir framan og aftan með timburpalli (fura). Annað - Gluggar og útihurðir eru úr ál-/trékerfi. Að innan eru póstar og karmar úr tré, að utan eru þeir klæddir áli. Tvöfalt einangrunargler er í gluggum. - Parket, Mammut Everest Oak Beige. - Flísar, Small Terrazzo Stone White 60x60 rect. - Innihurðir eru hvítar frá Birgisson - Bílastæði eru fyrir tvo bíla og eru með snjóbræðslukerfi. - Gólfhiti og inntök samkvæmt teikningu. - Varmaskiptir. - Þrívíddar teikningar eru eingöngu til hliðsjónar. - Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á, 0,3% af brunabótamati eignar. Skilalýsing Nánari upplýsingar í síma 571-9992 eða Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. FS fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði. 5. Skipulagsgjald (0,3% af brunabótamati eignarinnar) þegar það verður lagt á. FS fasteignir ehf. - Glerárgata 36, 3. hæð - 571-9992 - www.fsfasteignir.is Friðrik Sigþórsson, löggiltur fasteignasali, s: 694-4220, Svala Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, s: 663-5260, Sigurpáll Gunnarsson, nemi til löggildingar fasteignasala, s: 618-6126, Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá verðmat og ráðgjöf. Fylgstu með nýjustu eignunum til sölu hjá okkur á facebook og instagram.

Hvað er innifalið

Svalir
Garður
Íbúðarflatarmál150.7 m²
Svefnherbergi3
Baðherbergi2
Herbergi4
Byggingarár0

Staðsetning

Kort ekki tiltækt

Þessi auglýsing inniheldur ekki nákvæm hnit.

Auglýst á

MBL Fasteignir

114.900.000 kr.

Lánareiknivél

Áætluð mánaðargreiðsla

493.446 kr./mán

Útborgun20 % · 22.980.000 kr.
22.980.000 kr.91.920.000 kr. lán
Lánstími
Heildarendurgreiðsla177.640.717 kr.
Vextir5,00 %

Til viðmiðunar · Landomo er ekki fasteignalánamiðlari. · Vextir uppfærðir apríl 2026

Fyrirtæki

  • Um okkur
  • Fjölmiðlar
  • Gáttir

Skoða

  • Kaupa
  • Leiga
  • Skoða eftir staðsetningu
  • Leiðbeiningar
  • Rannsóknir
  • Algengar spurningar

Lögfræðilegt

  • Persónuverndarstefna
  • Þjónustuskilmálar
  • Vafrakökustefna
  • Útgáfuupplýsingar
landomo.is

© 2026 Landomo Real Estate. Allur réttur áskilinn.