listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.isbeta
Heim/Ísland
Fleiri eignir í nágrenninu

Íbúð – Reykjavík, Gufunes, Grafarvogur

Íbúð – Reykjavík, Gufunes, Grafarvogur
Íbúð – Reykjavík, Gufunes, Grafarvogur - Aðalmynd

2 herbergja til sölu, 60 m²

Reykjavík, Gufunes, Grafarvogur

1 Svefnherbergi·1 Baðherbergi

57.900.000 kr.

960.199 kr./m²

Skráð 13. okt. 2026

Um þessa auglýsingu

Ertu enn á leigumarkaði? Með hlutdeildarláni HMS getur þú eignast þína eigin íbúð með aðeins 2.845.000 kr. í eigið fé og mánaðarlegum afborgunum frá 230.000 kr. Bókaðu skoðun núna: Víðir Arnar S 854 2226 Valhöll kynnir: Glæsilegar, nýjar, vel hannaðar og fallegar íbúðir við strandlengjuna í Gufunesi. Íbúðir í fjölbreyttum stærðum og gerðum frá 42-170 fm, margar með fallega sjávarsýn og útsýni til fjalla. Mikil nánd við náttúruna og hafið. Kappkostað hefur verið við að skipulag íbúða sé með besta móti, þar sem hver fermetri nýtist vel. Fullbúnar íbúðir, hannaðar af innanhúshönnuðum með fallegum sérsmíðuðum innréttingum, vönduðum gólfefnum og tækjum. Aukin lofthæð í flestum íbúðum - Mikið um gólfsíða glugga Sérsmíðaðar innréttingar sem ná til lofts - Innbyggður ísskápur og uppþvottavél Quartz steinn á borðplötum - Undirlímdir vaskar Vandað efnisval í tækjum og gólfefnum - Hiti í öllum gólfum Sjávar eða fjallasýn úr mörgum íbúðum - Rúmgóðir inngarðar með skemmtilegum leiktækjum Afar snyrtileg og glæsilega hönnuð lóð með fallegri kvöldlýsingu - Spennandi umhverfisskipulag í tengslum við náttúruna Snjóbræðslukerfi í göngustígum með fallegri næturlýsingu - Áhersla á birtu, útsýni og græn sameiginleg svæði JÖFURSBÁS 3: Glæsilegar og vandaðar íbúðir við sjávarsíðuna í Gufunesi. Íbúðir í fjölbreyttum stærðum og gerðum frá 42-170 fm, margar með fallega sjávarsýn og útsýni til fjalla, aukin lofthæð í flestum íbúðum og vandaðar innréttingar. Mikil nánd við náttúruna og hafið. Sjá heimasíðu verkefnis HÉR Þessi íbúð – Jöfursbás 3 íbúð 104B - MÖGULEIKI Á HLUTDEILDARLÁNI - BÓKIÐ EINKASKOÐUN Íbúðin er 2ja herbergja með sér inngangi samtals 60,4 fm þar af geymsla 9,3 fm. Svalir til suðurs. Íbúðinni fylgir sér geymsla merkt 0013 í sameign. Aukin lofthæð er í íbúðinni eða um 280 cm. ATH Myndir úr íbúð eru tölvuteiknaðar og kunna að vera af öðrum íbúðum hússins. Nánari lýsing Forstofa rúmgóð með innbyggðum fataskáp Eldhús opið inn í stofu með fallegri innrétting sem er sérsmíðuð frá VOKE með quartz stein á borðplötu. Eldhústæki frá AEG. Útgengt út á svalir frá stofu. Baðherbergi flísalagt bæði gólf og hluti veggja. Vönduð innrétting með quartz borðplötu. Tenging fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu á baði. Blöndunartæki frá Grohe. Svefnherbergið er með góðum fataskáp sem nær til lofts. Geymsla á sér geymslugangi í kjallara hússins Hjóla-og vagnageymsla í kjallara Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar Hverfið í hjarta náttúrunnar: Staðsett við fallega vogskorna ströndina með einstöku útsýni, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Í Gufunesi er iðandi mannlíf, veitingastaður, glæsileg gyllt strönd þar sem hægt er að slaka á í fargufu, þeysast um sundin blá á sæþotu eða njóta útivistar á kajak. Stærsta kvikmyndaver Evrópu er staðsett í Gufunesi og þar er að byggjast upp líflegt samfélag skapandi greina. Í næsta nágrenni má finna alla helstu þjónustu, hvort sem það er verslun, grunnskólar, leikskólar eða íþróttamannvirki. Í Spönginni eru m.a. matvöruverslanir, veitingastaðir, vínbúð, bókasafn, apótek, heilsugæsla, menningarmiðstöð og tónlistarskóli. Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli. Golfvellir eru skammt undan. Sjá nánar skilalýsingu íbúða HÉR Nánari upplýsingar veita: Víðir Arnar Kristjánsson löggiltur fasteignasali / s. 854-2226 / Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Hvað er innifalið

Lyfta
Flatarmál60.3 m²
Herbergi2
Svefnherbergi1
Baðherbergi1

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.

Auglýst á

MBL Fasteignir

57.900.000 kr.

Lánareiknivél

Áætluð mánaðargreiðsla

248.656 kr./mán

Útborgun20 % · 11.580.000 kr.
11.580.000 kr.46.320.000 kr. lán
Lánstími
Heildarendurgreiðsla89.516.079 kr.
Vextir5,00 %

Til viðmiðunar · Landomo er ekki fasteignalánamiðlari. · Vextir uppfærðir apríl 2026

Fyrirtæki

  • Um okkur
  • Fjölmiðlar
  • Gáttir

Skoða

  • Kaupa
  • Leiga
  • Skoða eftir staðsetningu
  • Leiðbeiningar
  • Rannsóknir
  • Algengar spurningar
  • Pricing

Lögfræðilegt

  • Persónuverndarstefna
  • Þjónustuskilmálar
  • Vafrakökustefna
  • Útgáfuupplýsingar
landomo.is

© 2026 Landomo Real Estate. Allur réttur áskilinn.