Íbúð – Hafnarfjörður

4 herbergja til sölu, 133 m²

Hafnarfjörður

3 Svefnherbergi1 Baðherbergi

89.900.000 kr.

677.468 kr./m²

Skráð 9. sep. 2026

Um þessa auglýsingu

Pálsson Fasteignasala kynnir: Falleg og björt 132,7m² 4ja herbergja íbúð á 2. hæð á Akurvöllum 1. Stutt í alla helstu þjónustu eins og leikskóla, skóla, sundlaug og glæsilegt íþróttasvæði Hauka. - Frábær staður á Völlunum nálægt allri þjónustu - Í göngufæri frá tveimur leikskólum hverfisins og grunnskóla - Örfáar mínútur gangandi í sundlaug og matvöruverslanir. Nánari upplýsingar veita: Orri Hilmarsson astmf. S: í 615-3011 eða Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða www.eignavakt.is www.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur Nánari lýsing: Forstofa: Gengið er inn í forstofu með fataskáp. Frá forstofu er gengið inn á gang með svefnherbergjum til vinstri, baðherbergi og þvottahús til hægri. Stofa: Björt og rúmgóð stofa, parket er á gólfi og gluggar sem hleypa birtu inn í rýmið. Úr stofu er útgengt á svalir. Eldhús: Eldhús með parketi á gólfi og innbyggðum bakaraofni. Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með parketi á gólfi. Svefnherbergi II og III: Svefnherbergi með parketi á gólfi og gluggum sem hleypa birtu inn. Baðherbergi: Baðherbergi var endurnýjað árið 2022, er með flísum á gólfi, walk-in sturtu, baðkari, upphengdu klósetti og handklæðaofni. Þvottahús: Rúmgott þvottaherbergi í íbúð. Flísalagt gólf, skolvaskur og með góðu hilluplássi. Geymsla: Sérgeymsla er 7,6 m² í kjallara. Svalir: Rúmgóðar svalir með fallegu útsýni. Stutt í alla helstu þjónustu - göngufæri frá tveimur leikskólum hverfisins og grunnskóla, einnig í 3 matvöruverslanir, sund og alla helstu þjónustu. Birt stærð skv. HMS er 132,7m². Íbúðin er 125,1m² og geymsla er 7,6m². 3 svefnherbergi og möguleiki að bæta við öðru svefnherbergi Sameiginleg hjólageymsla á jarðhæð. Sameiginleg hjóla-og vagnageymsla í kjallara. Sameiginlegt bílastæði fyrir íbúa, tvö rafhleðslustæði eru á bílastæðinu. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga). 2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar. 4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. Um skoðunarskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Hvað er innifalið

Svalir
Lyfta

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.