listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.isbeta
Heim/Ísland
Fleiri eignir í nágrenninu

Íbúð – Orihuela, Residencial Orquídea (Las Colinas Golf)

Íbúð – Orihuela, Residencial Orquídea (Las Colinas Golf)
Íbúð – Orihuela, Residencial Orquídea (Las Colinas Golf) - Aðalmynd

3 herbergja til sölu, 96 m²

Orihuela, Residencial Orquídea (Las Colinas Golf)

2 Svefnherbergi·2 Baðherbergi

46.900.000 kr.

488.542 kr./m²

Skráð 27. ágú. 2026

Um þessa auglýsingu

SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *VÖNDUÐ ENDAÍBÚÐ MEÐ SUÐUR SVÖLUM Á FRÁBÆRU VERÐI* *ALLT FYLGIR MEÐ* *STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU OG GEYMSLA* *LAUS STRAX* Vönduð og vel hönnuð nýleg 3ja herb. endaíbúð á Las Colinas golfsvæðinu. Afhendist fullbúin fallegum húsgögnum, húsbúnaði og vönduðum rafmagnstækjum. Las Colinas hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu. Um 1 klst. akstur suður af Alicante. Góðar svalir með flottu útsýni. Sér bílastæði í bílakjallara ásamt geymslu. MJÖG GÓÐ KAUP. Allar upplýsingar gefa: Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. . 00354 893 2495. Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali. . 0034 615 112 869. Lýsing: Íbúðin, sem er á 3. hæð í nýlegu húsi, er rúmgóð með vel hönnuðu eldhúsi, stofu og borðstofu í opnu rými. Tvö góð svefnherbergi með skápum. Sér baðherbergi með öðru svefnherberginu, og eitt baðherbergi til viðbótar. Stórar suður svalir út frá stofu. Fallegur sameiginlegur sundlaugargarður með góðri sólbaðsaðstöðu. Einstakt gróið umhverfi, með Las Colinas golfvöllinn rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina. Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum. Einnig hafa íbúar Las Colinas aðgang að einka strandklúbb við Dehese de Campoamor ströndina. Á svæðinu er flott þjónustumiðstöð með líkasmsræktaraðstöðu, fleiri veitingastöðum og ýmissi þjónustu. Algjör lúxus fyrir vandláta. Loftkæling/hitun fylgir. Íbúðin afhendist fullbúin vönduðum húsgögnum, húsbúnaði og rafmagnstækjum. Allt klárt og hægt að flytja beint inn. Kjörið tækifæri til að eignast vandaða og fallega íbúð tilbúna til afhendingar strax, en allt að 2ja ára bið er nú eftir nýjum íbúðum á Las Colinas. Fjölmargir góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d. La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin. Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor og ca. 10 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard. Hér er um að ræða flotta eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum. Íbúðin er einnig mjög hentug til útleigu. VERÐ: 340.000 evrur, 46.900.000 ISK (m.v. gengi 138) Íbúð 76 fm. + svalir 20 fm. Samtals 96 sérafnotaflötur. Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu. Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is Kostnaður við kaupin: 9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 12%. Eiginleikar: útsýni, air con, golf, sameiginlegur sundlaugargarður, nýleg eign, suður svalir, Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,

Hvað er innifalið

Svalir
Lyfta
Bílskúr
Flatarmál96 m²
Herbergi3
Svefnherbergi2
Baðherbergi2
SveitarfélagOrihuela

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.

Auglýst á

MBL Fasteignir

46.900.000 kr.

Lánareiknivél

Áætluð mánaðargreiðsla

201.415 kr./mán

Útborgun20 % · 9.380.000 kr.
9.380.000 kr.37.520.000 kr. lán
Lánstími
Heildarendurgreiðsla72.509.570 kr.
Vextir5,00 %

Til viðmiðunar · Landomo er ekki fasteignalánamiðlari. · Vextir uppfærðir apríl 2026

Fyrirtæki

  • Um okkur
  • Fjölmiðlar
  • Gáttir

Skoða

  • Kaupa
  • Leiga
  • Skoða eftir staðsetningu
  • Leiðbeiningar
  • Rannsóknir
  • Algengar spurningar

Lögfræðilegt

  • Persónuverndarstefna
  • Þjónustuskilmálar
  • Vafrakökustefna
  • Útgáfuupplýsingar
landomo.is

© 2026 Landomo Real Estate. Allur réttur áskilinn.