Íbúð – Kópavogur, Kársnes

3 herbergja til sölu, 88 m²

Kópavogur, Kársnes

2 Svefnherbergi

89.900.000 kr.

1.022.753 kr./m²

Skráð 12. ágú. 2026

Um þessa auglýsingu

RE/MAX kynnir með stolti: Hafnarbraut 18. Vandaðar og glæsilegar íbúðir í nýju og fallegu fjölbýlishúsi við sjávarsíðuna á Kársnesi, 200 Kópavogi. ⭐️ Fjölbreyttar stærðir og gerðir frá 48 til 194 fm. Stæði í bílageymslu fylgir flestum íbúðum. ⭐️ Íbúðirnar skilast fullbúnar með parketi. Sérsmíðaðar innréttingar frá Brúnás. Vönduð eldhústæki og sjálfstætt loftskiptikerfi. Aukin lofthæð, 270-290 cm. Íbúð 106: Vel skipulögð og björt þriggja herbergja, 87,9 fm íbúð á jarðhæð ásamt stæði í bílageymslu. Rúmgóður 12,24 fm sérafnotareitur með vönduðum bambus timburpalli. Sér þvottahús innan íbúðar með veglegri innréttingu. Sér 8,9 m2 geymsla í sameign. ⭐️ Kynningarvefur hússins ⭐️ Bókið skoðun, sýnum alla daga Þorsteinn Yngvason, Lögmaður/löggiltur fasteignasali, í síma 696-0226 / Elvar Frímann Frímannsson, Löggiltur fasteignasali, í síma 659-6606 / Guðmundur Þór Júlíusson, Löggiltur fasteignasali, í síma 858-7410 / Ending og gæði voru höfð að leiðarljósi við allt efnisval og frágang hússins. Hér eru helstu kostir við frágang: ✅ Sjálfstætt loftskiptikerfi í öllum íbúðum ✅ Sérsmíðaðar innréttingar, framleiddar og uppsettar af Brúnaás. ✅ Ítalskar kvarts borðplötur á eldhúsum og baðherbergjum ✅ Aukin lofthæð í öllum íbúðum, 270 – 290 cm ✅ Innbyggður kæliskápur og uppþvottavél. Hreinlætistæki frá Grohe ✅ Vönduð og falleg álklæðning sem veðurkápa ✅ Sér þvottahús í flestum íbúðum ✅ Svalagólf og sérafnotareitir skilast með viðhaldsléttu Bambus pallaefni ✅ Vönduð svalalokun/skýli í völdum íbúðum Húsið: Hafnarbraut 18 er vandað og einstaklega vel staðsett fjölbýlishús við sjávarsíðuna á vestanverðu Kársnesinu í námunda við fyrirhugaða Fossvogsbrú sem mun, ásamt Borgarlínustöð, skapa sterka tengingu við Öskjuhlíð, háskólasvæðin, Reykjavíkurflugvöll og miðborg Reykjavíkur. Húsbyggingin er fimm hæðir á niðurgröfnum kjallara þar sem eru bílastæði, sérgeymslur, sameiginlegar reiðhjóla- og vagnageymslur og tæknirými. Á íbúðahæðunum fyrir ofan eru 52 fjölbreyttar íbúðir af mismunandi gerð, stærð og herbergjafjölda. Byggingin er hönnuð fyrir fjölbreyttan markhóp íbúa, allt frá sérhönnuðum stúdíóíbúðum til rúmgóðra fjölskylduíbúða. Byggingaraðili/aðalverktaki er Brúarbyggð ehf. ⭐️ Skilalýsing og tækjalisti seljanda ⭐️ Hönnun: Arkitektar og aðalhönnuðir eru Skala: arkitektar Burðarþolshönnun: Verkfræðistofan Víðsjá Lagna- og loftræstihönnun: Verkfræðistofan Víðsjá Raflagnahönnun: Sturla Snorrason Hljóðvistarhönnun: Myrra hljóðstofa Eldvarnahönnun: ÖRUGG verkfræðistofa Landslagshönnun og innanhússhönnun: Skala: arkitektar Umhverfið: Hverfið er rólegt og gróið og býr yfir miklum náttúrutöfrum. Skólar eru í næsta nágrenni og í göngu fjarlægð er bæði Sky lagoon og sundlaug Kópavogs. Þá eru nærri verslanir, heilbrigðisþjónusta að ógleymdum menningarperlum Kópavogs, Gerðasafni, Salnum og Kópavogskirkju sem er eitt af kennileitum bæjarins. Stutt er í matvöruverslanir og alla helstu þjónustu. Kársnesið er með fjölda göngu- og hjólastíga sem tengist hvort sem er til Reykjavíkur eða inn í Kópavoginn. Einstök staðsetning fyrir þá sem elska að horfa út á hafið og njóta þess að vera með bát í höfn. Skipulagsgjald: Kaupendur greiða álagt skipilagsgjald við endanlega útgáfu brunabótamats sem nemur 0,3% af heildarmati.

Hvað er innifalið

Svalir
Lyfta
Bílskúr

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.