listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.isbeta
Heim/Ísland
Fleiri eignir í nágrenninu

atv, Hellishólar, Hvolsvöllur (dreifbýli)

atv, Hellishólar, Hvolsvöllur (dreifbýli)
atv, Hellishólar, Hvolsvöllur (dreifbýli) - Aðalmynd

Atvinnuhúsnæði til sölu, 747625 m²

Hellishólar, Hvolsvöllur (dreifbýli)

1.700.000.000 kr.

2.274 kr./m²

Skráð 29. sep. 2026

Um þessa auglýsingu

Fasteignasalan Torg og Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali kynna: ***Ferðaþjónusta á Hellishólum í Fljótshlíð – Rangárþingi eystra. Upp í taka á fasteignum verður skoðuð*** Heimasíðan er hér. Á Hellishólum í Fljótshlíð er rekið rótgróið og öflugt ferðaþjónustufyrirtæki sem hefur verið þróað markvisst á undanförnum árum. Um er að ræða heildstæða starfsemi sem byggir á fjölbreyttu gistiframboði, góðri aðstöðu fyrir ferðamenn og starfsfólk, og miklum möguleikum til áframhaldandi vaxtar. Heildargistirými rúmar allt að um 165 gesti, auk tjaldsvæðis með plássi fyrir um 100 hjólhýsi, þar af eru um 70 stæði í heilsársleigu sem tryggja stöðugar tekjur. Á svæðinu er 9 holu golfvöllur sem hannaður er með það í huga að hægt sé að stækka hann í 18 holur. Þar er einnig rúmgóður matsalur fyrir allt að 130 gesti ásamt fullbúnu atvinnueldhúsi, auk sér salar með eigin eldhúsaðstöðu sem er nýttur í útleigu. Aðstaða fyrir starfsfólk er til fyrirmyndar og skipulögð með hagkvæmum hætti. Fyrirtækið hefur sýnt stöðugan rekstur síðustu ár og býður upp á spennandi tækifæri fyrir fjárfesta eða réttan aðila. Möguleikar eru á að fasteignir verði teknar upp í hluta sem hluta af kaupverði. ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR FRIÐRIKSSON, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - . Helstu eignir og mannvirki: Tveir hótelskálar með samtals 36 herbergjum (32 tveggja manna og 4 einbreið), öll með sér baðherbergi. Sumarhús í þremur stærðarflokkum: Níu hús um 15,6 m2 með baðherbergi og gistirými fyrir þrjá. Tíu hús um 22,9 m2 með eldhúsi, baðherbergi og svefnplássi fyrir fjóra. Fimm hús um 39 m2 með tveimur svefnherbergjum, eldhúsi og baðherbergi fyrir allt að sex gesti. Veitingaaðstaða: Stór salur fyrir allt að 130 manns með vel búnum iðnaðareldhúsum, kælum og frystum. Minni salur fyrir um 40 manns með sér eldhúsi. Þvottahús með iðnaðartækjum. Starfsmannaaðstaða með setustofu, eldhúsi og 11 herbergjum, þar af sex stk. með sér baðherbergi. Geymslur fyrir búnað og rekstrarvörur. Allur rekstur er seldur með þeim tækjum og búnaði sem honum tilheyra samkvæmt tækjalista. Land og réttindi Jörðin spannar um 90–100 hektara og fylgir henni hlutdeild í sameiginlegu heiðarlandi. Veiðiréttindi eru í Þverá og einnig er veiði í Hellishólavatni þar sem silungi er sleppt reglulega. Nokkrar óbyggðar sumarhúsalóðir hafa þegar verið stofnaðar úr landinu og fylgja með í sölunni. Tæknilegir innviðir. Þriggja fasa rafmagn og öflug rafmagnstenging. Ljósleiðaratenging. Traustur grunnur fyrir frekari uppbyggingu. Hellishólar standa á einstaklega fallegum stað með víðáttumiklu og tilkomumiklu útsýni. Umhverfið og náttúran gera staðinn sérstaklega aðlaðandi fyrir ferðamenn allt árið um kring. Til sölu er rekstrarfélagið ásamt þeim fasteignum, mannvirkjum, búnaði og réttindum sem nauðsynleg eru til rekstursins, eins og hér hefur áður verið lýst. ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR FRIÐRIKSSON, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - . Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: 1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali. 3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá. 5. Kaupandi eignarinnar greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignarinnar. Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra.
Gólfflatarmál747624.8000011444 m²

Staðsetning

Kort ekki tiltækt

Þessi auglýsing inniheldur ekki nákvæm hnit.

Auglýst á

MBL Fasteignir

1.700.000.000 kr.

Lánareiknivél

Áætluð mánaðargreiðsla

7.300.774 kr./mán

Útborgun20 % · 340.000.000 kr.
340.000.000 kr.1.360.000.000 kr. lán
Lánstími
Heildarendurgreiðsla2.628.278.666 kr.
Vextir5,00 %

Til viðmiðunar · Landomo er ekki fasteignalánamiðlari. · Vextir uppfærðir apríl 2026

Fyrirtæki

  • Um okkur
  • Fjölmiðlar
  • Gáttir

Skoða

  • Kaupa
  • Leiga
  • Skoða eftir staðsetningu
  • Leiðbeiningar
  • Rannsóknir
  • Algengar spurningar

Lögfræðilegt

  • Persónuverndarstefna
  • Þjónustuskilmálar
  • Vafrakökustefna
  • Útgáfuupplýsingar
landomo.is

© 2026 Landomo Real Estate. Allur réttur áskilinn.