listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.isbeta
Heim/Ísland
Fleiri eignir í nágrenninu

Íbúð – Reykjavík

Íbúð – Reykjavík
Íbúð – Reykjavík - Aðalmynd

3 herbergja til sölu, 73 m²

Reykjavík

2 Svefnherbergi·1 Baðherbergi

69.900.000 kr.

962.810 kr./m²

Skráð 24. ágú. 2026

Um þessa auglýsingu

FALLEG, ENDURNÝJUÐ MIÐBÆJARÍBÚÐ MEÐ AUKINNI LOFTHÆÐ. LAUS VIÐ KAUPSAMNING. Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27 og Snorri Snorrason lgf. "sími 895 2115 og " kynnir til sölu einstaklega fallega og mikið endurnýjaða 72,6 fm íbúð á 1. hæð í sjarmerandi steinsteyptu fjórbýlishúsi við Grettisgötu 74, 101 Reykjavík. Húsið var byggt árið 1931 eftir teikningum arkitektsins Pjeturs Ingimundarsonar og ber með sér falleg einkenni tímabilsins. Íbúðin hefur verið endurnýjuð af miklum smekk þar sem lögð hefur verið áhersla á að varðveita upprunalegan karakter eignarinnar. . Um 2,70 metra lofthæð, glæsilegir loftlistar, fallegar upprunalegar hurðir og stórir gluggar skapa einstaklega hlýlegt og bjart yfirbragð. Íbúðin er öll nýmáluð, gólfefni endurnýjuð á alla íbúðina. Eldhúsinnrétting með vönduðum tækjum og góðu skápaplássi sett upp í borðstofu. Skipulagi íbúðarinnar hefur því verið breytt sem nýtir fermetrana einstaklega vel. Fallegur, gróinn og sólríkur sameiginlegur garður er sunnan við húsið. Staðsetningin er í hjarta miðborgarinnar þar sem örstutt er í verslanir, kaffihús, veitingastaði, Sundhöll Reykjavíkur, skóla á öllum skólastigum og alla helstu þjónustu. Bílageymslan Stjörnuport er í bakgarðinum handan við götuna og er mánaðargjaldið fyrir íbúa kr. 11.400,- Nánari lýsing Forstofa/Gangur Bjartur miðgangur sem tengir saman öll rými íbúðarinnar. Stofa Rúmgóð og einstaklega björt stofa með lofthæð, fallegum upprunalegum loftlistum og stórum gluggum sem fylla rýmið af náttúrulegri birtu. Eldhús Nýtt og smekklega hannað eldhús með fallegri IKEA innréttingu, ofni, spanhelluborði, háfi og góðu skápaplássi. Svefnherbergi I Mjög rúmgott og bjart svefnherbergi með fataskápum. Svefnherbergi II Gott og bjart svefnherbergi með sér inngangi fram á stigapall. Baðherbergi Flísalagt baðherbergi með sturtu, upphengdu salerni og handlaug. Geymsla Geymsla innan íbúðar. Auk þess fylgir hlutdeild í sameiginlegri geymslu í risi. Þvottahús Sameiginlegt þvottahús í kjallara með sértengli fyrir hverja íbúð. Garður Fallegur, gróinn og sólríkur sameiginlegur garður sem snýr til suðurs. Endurbætur Íbúðin öll nýmáluð. Ný gólfefni á allri íbúðinni. Ný og glæsileg eldhúsinnrétting ásamt nýjum eldhústækjum. Innra skipulag endurbætt með nútímalegri rýmisnýtingu. Stigagangur endurnýjaður árið 2019; skipt var um teppi og veggir, loft, listar og hurðir málaðar. Að sögn meðeiganda í húsinu þá var frárennslislagnir frá þvottahúsi út í götu fóðraðar í kringum 2000. Nánari upplýsingar veitir Snorri Snorrason, löggiltur fasteignasali, sími 895 2115, netfang: Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga). 2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna. 4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 79.900 kr. 5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.
Flatarmál72.6 m²
Herbergi3
Svefnherbergi2
Baðherbergi1
UndirgerðÍbúð

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.

Auglýst á

MBL Fasteignir

69.900.000 kr.

Fasteignaleitin

69.900.000 kr.

Lánareiknivél

Áætluð mánaðargreiðsla

300.191 kr./mán

Útborgun20 % · 13.980.000 kr.
13.980.000 kr.55.920.000 kr. lán
Lánstími
Heildarendurgreiðsla108.068.635 kr.
Vextir5,00 %

Til viðmiðunar · Landomo er ekki fasteignalánamiðlari. · Vextir uppfærðir apríl 2026

Fyrirtæki

  • Um okkur
  • Fjölmiðlar
  • Gáttir

Skoða

  • Kaupa
  • Leiga
  • Skoða eftir staðsetningu
  • Leiðbeiningar
  • Rannsóknir
  • Algengar spurningar
  • Pricing

Lögfræðilegt

  • Persónuverndarstefna
  • Þjónustuskilmálar
  • Vafrakökustefna
  • Útgáfuupplýsingar
landomo.is

© 2026 Landomo Real Estate. Allur réttur áskilinn.