listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.isbeta
Heim/Ísland
Fleiri eignir í nágrenninu

Íbúð – Akureyri

Íbúð – Akureyri
Íbúð – Akureyri - Aðalmynd
Ekki lengur í boði

Þessi auglýsing er ekki lengur virk. Við geymum hana til viðmiðunar, en upplýsingarnar gætu verið úreltar.

3 herbergja til sölu, 100 m²

Akureyri

2 Svefnherbergi·1 Baðherbergi

59.900.000 kr.

599.600 kr./m²

Skráð 21. ágú. 2026

Um þessa auglýsingu

Víðilundur 18d - Fallega endurnýjuð og einstaklega snyrtileg 3ja herbergja íbúð á góðum stað - Stærð 99,9 m². Um er að ræða afar smekklega endurnýjaða íbúð sem hefur verið tekin í gegn á vandaðan hátt á síðustu árum. Við val á innréttingum og efnisvali var lögð áhersla á bjarta, létta og nútímalega heildarmynd í hlutlausum litum sem skapar notalegt og stílhreint heimili. Forstofa er með flísum á gólfi og góðu rými fyrir yfirhafnir og skó. Eldhús hefur verið endurnýjað frá grunni og er einstaklega snyrtilegt með fallegri innréttingu. Þar er innbyggður ísskápur, spanhelluborð og ofn í vinnuhæð. Góður borðkrókur er við glugga og flísar eru á gólfi. Stofa og borðstofa mynda rúmgott og bjart alrými með góðu plássi fyrir setu- og borðstofuhúsgögn. Þaðan er útgengt á vestursvalir. Svefnherbergin eru tvö, bæði góð að stærð. Í öðru herberginu eru nýlegir og vandaðir fataskápar. Baðherbergið hefur verið endurnýjað að öllu leyti með fallegu og nútímalegu útliti. Flísar eru á gólfi og veggjum, rúmgóð walk-in sturta með innbyggðum blöndunartækjum, upphengt salerni, ljós baðinnrétting og opnanlegur gluggi. Þvottahús/geymsla er inn af eldhúsi og nýtist vel sem þvottaaðstaða og aukageymsla. Sérgeymsla fylgir íbúðinni í sameign hússins. Í heild sinni er hér um að ræða mjög fallega, vel skipulagða og mikið endurnýjaða íbúð þar sem ekkert hefur verið til sparað við framkvæmd og frágang. Tilvalið heimili fyrir þá sem vilja flytja beint inn í bjarta og smekklega eign án frekari framkvæmda. - Þak hússins var endurnýjað árið 2019 - Frárennsli hefur verið endurnýjað - Stétt framan við húsið var nýlega endurnýjuð og sett hitalögn í hana - Hjóla- og vagnageymsla er í sameign Nánari upplýsingar veitir Sigurður H. Þrastarson, , s. 888-6661. Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvað er innifalið

Svalir
Flatarmál99.9 m²
Herbergi3
Svefnherbergi2
Baðherbergi1

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.

Auglýst á

MBL Fasteignir

59.900.000 kr.

Lánareiknivél

Áætluð mánaðargreiðsla

257.245 kr./mán

Útborgun20 % · 11.980.000 kr.
11.980.000 kr.47.920.000 kr. lán
Lánstími
Heildarendurgreiðsla92.608.172 kr.
Vextir5,00 %

Til viðmiðunar · Landomo er ekki fasteignalánamiðlari. · Vextir uppfærðir apríl 2026

Fyrirtæki

  • Um okkur
  • Fjölmiðlar
  • Gáttir

Skoða

  • Kaupa
  • Leiga
  • Skoða eftir staðsetningu
  • Leiðbeiningar
  • Rannsóknir
  • Algengar spurningar

Lögfræðilegt

  • Persónuverndarstefna
  • Þjónustuskilmálar
  • Vafrakökustefna
  • Útgáfuupplýsingar
landomo.is

© 2026 Landomo Real Estate. Allur réttur áskilinn.