# fjolb, Víðilundur 18d, Akureyri

> Canonical listing: https://is.landomo.com/property/e4c5b355-e1e9-4c6e-ae39-0ef33eaad15e

This is a compact, machine-readable representation of a public Landomo listing. Verify the canonical page before presenting the property as currently available.

## Listing facts

- **Status:** removed
- **Transaction:** sale
- **Category:** apartment
- **Asking price:** 59,900,000 ISK
- **Location:** Akureyri, IS
- **Floor area:** 99.9 m²
- **Bedrooms:** 2
- **Published:** 2026-08-21T12:56:57.876Z
- **Last updated:** 2026-09-29T01:49:00.616Z
- **Listed on:** mbl-is

## Description

Víðilundur 18d - Fallega endurnýjuð og einstaklega snyrtileg 3ja herbergja íbúð á góðum stað - Stærð 99,9 m².
Um er að ræða afar smekklega endurnýjaða íbúð sem hefur verið tekin í gegn á vandaðan hátt á síðustu árum. Við val á innréttingum og efnisvali var lögð áhersla á bjarta, létta og nútímalega heildarmynd í hlutlausum litum sem skapar notalegt og stílhreint heimili.

Forstofa er með flísum á gólfi og góðu rými fyrir yfirhafnir og skó.
Eldhús hefur verið endurnýjað frá grunni og er einstaklega snyrtilegt með fallegri innréttingu. Þar er innbyggður ísskápur, spanhelluborð og ofn í vinnuhæð. Góður borðkrókur er við glugga og flísar eru á gólfi.
Stofa og borðstofa mynda rúmgott og bjart alrými með góðu plássi fyrir setu- og borðstofuhúsgögn. Þaðan er útgengt á vestursvalir.
Svefnherbergin eru tvö, bæði góð að stærð. Í öðru herberginu eru nýlegir og vandaðir fataskápar.
Baðherbergið hefur verið endurnýjað að öllu leyti með fallegu og nútímalegu útliti. Flísar eru á gólfi og veggjum, rúmgóð walk-in sturta með innbyggðum blöndunartækjum, upphengt salerni, ljós baðinnrétting og opnanlegur gluggi.
Þvottahús/geymsla er inn af eldhúsi og nýtist vel sem þvottaaðstaða og aukageymsla.
Sérgeymsla fylgir íbúðinni í sameign hússins.

Í heild sinni er hér um að ræða mjög fallega, vel skipulagða og mikið endurnýjaða íbúð þar sem ekkert hefur verið til sparað við framkvæmd og frágang. Tilvalið heimili fyrir þá sem vilja flytja beint inn í bjarta og smekklega eign án frekari framkvæmda.

- Þak hússins var endurnýjað árið 2019
- Frárennsli hefur verið endurnýjað
- Stétt framan við húsið var nýlega endurnýjuð og sett hitalögn í hana
- Hjóla- og vagnageymsla er í sameign

Nánari upplýsingar veitir Sigurður H. Þrastarson, , s. 888-6661.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

## Source and attribution

- Cite and link: https://is.landomo.com/property/e4c5b355-e1e9-4c6e-ae39-0ef33eaad15e
- Asking price and availability may change after this response was generated.
- Contact information and originating-portal links are available on the canonical page.
