listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.isbeta
Heim/Ísland
Fleiri eignir í nágrenninu

Íbúð – Hafnarfjörður, Höfuðborgarsvæðið

Íbúð – Hafnarfjörður, Höfuðborgarsvæðið
Íbúð – Hafnarfjörður, Höfuðborgarsvæðið - Aðalmynd

3 herbergja til sölu, 139 m²

Hafnarfjörður, Höfuðborgarsvæðið

2 Svefnherbergi·1 Baðherbergi

99.900.000 kr.

719.222 kr./m²

Skráð 4. nóv. 2026

Um þessa auglýsingu

Helgafell fasteignasala kynnir nýja þriggja til fimm herbergja fullbúna endaíbúð á annari hæð, merkt 0201 við Áshamar 5 í Hafnarfirði. Birt stærð: 138,9 fm., þar af er sér geymsla 5,3fm. Verktaki: JE Skjanni ehf. Sjá heimasíðu verkefnisins hér Lýsing: Anddyri: Harðparket á gólfi og rúmgóður þrefaldur skápur. Hjónaherbergi: 16,1fm., gott skápapláss og harðparket á gólfi. Barnaherbergi 1: 9,6fm., harðparket á gólfi og skápur. Þar sem sjónvarpshol er skv. teikningu er auðveldlega hægt að koma fyrir tveimur svefnherbergjum með gluggum. Stórt eldhús með eyju, opið við stofu - L laga eldhúsinnrétting frá Kappa með góðu skápaplássi. Bosch ísskápur, uppþvottavél, helluborð, gufugleypir og bakaraofn í vinnuhæð. Öll tæki frá Smith&Norland. Stór stofa/borðstofa: Harðparket á gólfi með útgengi á suðvestur 16,3fm. svalir með góðu útsýni. Baðherbergi: Rúmgott og flísalagt í hólf og gólf (flísar frá Agli Árnasyni), upphengt salerni, "Walk-in" sturta. Inn af baðherbergi er flísalagt þvottahús. Sér geymsla í sameign á neðstu hæð. Íbúðin er með gólfhita og er afhent fullbúin með gólfefnum, harðparket á gólfi og flísar í blautrýmum. Einangrun undir gólfhitalagnirnar og anhýdrít ílögn yfir gólfhitalagnirnar. Endanlegur frágangur gólfefna er hluti af heildarhljóðvist hússins sem tryggir hljóðvist, vandað undirlag og réttan frágang gólfefna. Hvítar 90cm yfirfelldar hurðir frá Parka með 90cm ljósopi. Dyrasímakerfi með myndavél uppsett. Ljósleiðari kominn í hús og inn í smáspennutöflu hverrar íbúðar. RJ45 nettengi eru uppsett og tengd inn í smáspennutöflu. Loftnet er komið inn í smáspennutöflu. Í sameign er hjóla- og vagnageymsla. Teppalagðir stigagangar með góðri lýsingu. Glerlokun með hurð frá stigagangi inn á íbúðarpalla á hverri hæð. Lyfta gengur inn í íbúðarpallana á hverri hæð. Vandaðar brunahurðir frá Parka inn í íbúðirnar. Sameiginleg 95 stæði á lóðinni. Búið er að leggja rafmagnslagnir að hluta af stæðum án tengingar, sem hugsaðar eru fyrir rafmagnsbíla. Barnvænt hverfi, undirgöng nálægt húsinu og er því góð gönguleið í skóla þar sem ekki er þörf að fara yfir umferðargötu á leið í skólann. Nýr leikskóli í götunni. ATH: Myndir af íbúðinni geta verið úr samskonar eða svipaðri íbúð. ATH: Svalalokanir sem sjást á tölvugerðri mynd eru ekki afhentar með íbúðunum. Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við sölumenn Helgafells fasteignasölu. ---------------------------------------------------------- Heimasíða Helgafells fasteignasölu Facebook síða Helgafells - Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu - Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana. 4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk. Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Hvað er innifalið

Svalir
Lyfta
Flatarmál138.9 m²
Herbergi3
Svefnherbergi2
Baðherbergi1

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.

Auglýst á

MBL Fasteignir

99.900.000 kr.

Lánareiknivél

Áætluð mánaðargreiðsla

429.028 kr./mán

Útborgun20 % · 19.980.000 kr.
19.980.000 kr.79.920.000 kr. lán
Lánstími
Heildarendurgreiðsla154.450.023 kr.
Vextir5,00 %

Til viðmiðunar · Landomo er ekki fasteignalánamiðlari. · Vextir uppfærðir apríl 2026

Fyrirtæki

  • Um okkur
  • Fjölmiðlar
  • Gáttir

Skoða

  • Kaupa
  • Leiga
  • Skoða eftir staðsetningu
  • Leiðbeiningar
  • Rannsóknir
  • Algengar spurningar
  • Pricing

Lögfræðilegt

  • Persónuverndarstefna
  • Þjónustuskilmálar
  • Vafrakökustefna
  • Útgáfuupplýsingar
landomo.is

© 2026 Landomo Real Estate. Allur réttur áskilinn.