listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.isbeta
Heim/Ísland
Fleiri eignir í nágrenninu

Íbúð – Sandgerði

Íbúð – Sandgerði
Íbúð – Sandgerði - Aðalmynd

3 herbergja til sölu, 79 m²

Sandgerði

2 Svefnherbergi·1 Baðherbergi

54.900.000 kr.

698.473 kr./m²

Skráð 3. okt. 2026

Um þessa auglýsingu

PRODOMO fasteignasala kynnir í sölu bjarta og vel skipulagða 78,6 fm þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngang og verönd að Bárukeri 4 í Suðurnesjabæ. Íbúðarrýmið er 75,7 fm og sérgeymsla í sameign 2,9 fm. Um er að ræða afar vandaða og snyrtilega eign á jarðhæð með gólfhita í öllum rýmum, innréttingum frá HTH og timburverönd með skjólveggjum. Nánari lýsing Forstofa: Flísar á gólfi og góður forstofuskápur. Eldhús: Parket á gólfi, falleg innrétting frá HTH með uppþvottavél, ísskáp og bakarofni í þægilegri vinnuhæð. Stofa: Parket á gólfi, björt og rúmgóð með útgengi út á afgirta timburverönd með skjólveggjum. Hjónaherbergi: Parket á gólfi og fataskápur. Barnaherbergi: Parket á gólfi og fataskápur. Baðherbergi / þvottaaðstaða: Flísalagt í hólf og gólf. Innrétting við vask, rúmgóð „walk-in“ sturta og vönduð innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Geymsla: 2,9 fm sérgeymsla í sameign. ***Jarðhæð, sérinngangur og verönd með skjólveggjum. ***Gólfhiti í allri íbúðinni. ***Vandaðar innréttingar frá HTH ***Rúmgott baðherbergi með „walk-in“ sturtu og sérinnréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. ***Tvö svefnherbergi, bæði með fataskápum. Vönduð og falleg eign á jarðhæð á góðum stað í Suðurnesjabæ sem vert er að skoða. Allar nánari upplýsingar veita: Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali 420-4030 / 860-6886 Hákon Ó. Hákonarson Löggiltur fasteignasali 420-4030 / 899-1298 Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: * Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila. * Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. * Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. * Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Hvað er innifalið

Svalir
Flatarmál78.6 m²
Herbergi3
Svefnherbergi2
Baðherbergi1
UndirgerðÍbúð

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.

Auglýst á

MBL Fasteignir

54.900.000 kr.

Fasteignaleitin

54.900.000 kr.

Lánareiknivél

Áætluð mánaðargreiðsla

235.772 kr./mán

Útborgun20 % · 10.980.000 kr.
10.980.000 kr.43.920.000 kr. lán
Lánstími
Heildarendurgreiðsla84.877.940 kr.
Vextir5,00 %

Til viðmiðunar · Landomo er ekki fasteignalánamiðlari. · Vextir uppfærðir apríl 2026

Fyrirtæki

  • Um okkur
  • Fjölmiðlar
  • Gáttir

Skoða

  • Kaupa
  • Leiga
  • Skoða eftir staðsetningu
  • Leiðbeiningar
  • Rannsóknir
  • Algengar spurningar

Lögfræðilegt

  • Persónuverndarstefna
  • Þjónustuskilmálar
  • Vafrakökustefna
  • Útgáfuupplýsingar
landomo.is

© 2026 Landomo Real Estate. Allur réttur áskilinn.