# fjolb, Ástjörn 13, Selfoss

> Canonical listing: https://is.landomo.com/property/e9c6e343-e7df-4bb6-ac15-e9ce36367f53

This is a compact, machine-readable representation of a public Landomo listing. Verify the canonical page before presenting the property as currently available.

## Listing facts

- **Status:** active
- **Transaction:** sale
- **Category:** apartment
- **Asking price:** 64,500,000 ISK
- **Location:** Selfoss, IS
- **Floor area:** 87.8 m²
- **Bedrooms:** 2
- **Published:** 2026-10-03T07:51:34.972Z
- **Last updated:** 2026-10-11T16:45:50.414Z
- **Listed on:** mbl-is

## Description

HÚS fasteignasala kynnir í einkasölu. Ástjörn 13 Selfossi. 5 hæða nýtt og vandað fjölbýlishús með 35 íbúðum frá 54,8 m2 upp í 109,9 m2 ásamt sameign á jarðhæð.

Í húsinu eru tveggja, þriggja og fjögurra herbergja íbúðir. Ástjörn 13 er í austurhluta bæjarins þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og leikskóli í næsta nágrenni. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd að utan með viðhaldslitlum klæðningum. Ál/tré gluggar. Öllum íbúðum verður skilað fullbúnum með gólfefnum. Frágengin lóð með malbikuðum bílastæðum.
31,5fm bílskúr fylgir íbúðum 101, 307,407 og 507

Innréttingar og skápar eru framleiddar úr vönduðu slitsterku melamin efni að utan og innan. Borðplötur eru harðplastlagðar. Helluborð, háfur/vifta, bakarofn, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur af vandaðri gerð fylgja öllum íbúðum. Á íbúðum verður vinylparket af vandaðri gerð fullfrágengið ásamt gólflistum. Flísar í ljósum lit verða á gólfi á böðum. Geymslur eru innan íbúða en geymsluskápar í minnstu íbúðunum á jarðhæð. Hjóla og vagnageymsla í sameign.

Traustur byggingaraðili, Pálmatré, með áratugareynslu í mannvirkjagerð.

Íbúð 503 er þriggja herbergja 87,8 fm á fimmtu hæð. Stórar suðursvalir. Innra skipulag, Forstofa með fataskáp. Hol/gangur. Eldhús og stofa í opnu rými. Hurð út á svalir. Tvö svefnherbergi með fataskápum. Baðherbergi með opinni sturtu og innréttingu ásamt innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Geymsla innan íbúðar.

Á sölusíðu fyrir Ástjörn 13 má finna teikningar af öllum íbúðum, skilalýsingu o.fl.
https://astjorn13.is/
Ath tölvumyndir innan úr íbúðum eru til hliðsjónar til að sýna áferð innréttinga og efnisval.

Nánari upplýsingar veita fasteignasalar hjá Húsi fasteignasölu Austurvegi 26 Selfossi.
Bókið skoðun, við erum til þjónustu reiðubúin.

Loftur Erlingsson s 8969565 eða 
Ragna Valdís Sigurjónsdóttir s 8466581 eða 
Steindór Guðmundsson s 8621996 eða steindó
Hafsteinn Þorvaldsson s 8918891 eða 
Snorri Sigurfinnsson s. 8648090 eða 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila. 0,4% fyrir fyrstu eignar kaupendur.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
5. Skipulagsgjald 0,3 % af brunabótamati sem lagt er á að lokinni lokaúttekt.

Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

## Source and attribution

- Cite and link: https://is.landomo.com/property/e9c6e343-e7df-4bb6-ac15-e9ce36367f53
- Asking price and availability may change after this response was generated.
- Contact information and originating-portal links are available on the canonical page.
