listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.isbeta
Heim/Ísland
Fleiri eignir í nágrenninu

Íbúð – Kópavogur

Íbúð – Kópavogur
Íbúð – Kópavogur - Aðalmynd
Ekki lengur í boði

Þessi auglýsing er ekki lengur virk. Við geymum hana til viðmiðunar, en upplýsingarnar gætu verið úreltar.

3 herbergja til sölu, 120 m²

Kópavogur

2 Svefnherbergi·1 Baðherbergi

89.900.000 kr.

749.791 kr./m²

Skráð 9. sep. 2026

Um þessa auglýsingu

Pálsson Fasteignasala kynnir: Falleg björt íbúð á annarri hæð með suður svölum í góðu fjórbýlishúsi á vinsælum stað í Kársnesinu í Kópavogi. Frábær staðsetning innst í botnlanga í göngufæri við alla helstu þjónustu. * Suður svalir * Fallegt útsýni * Bílskúr * Næg bílastæði Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Inga Reynis löggiltur fasteignasali í síma 820-1903 eða á netfanginu www.eignavakt.is www.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er heildarfermetratalan 119,9 fm þar af er bílskúrinn 24,5 fm. Íbúðin er mikið endurnýjuð og skiptist í anddyri, hol, tvö stór svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, uppgert eldhús í sameiginlegu rými með stofunni með útgengt á suðursvalir. Nánar um eignina Komið inn í hol með parket á gólfi og góðu fatahengi. Stofa er mjög rúmgóð og björt með gluggum til beggja átta. Útgengt er á suður svalir og parket á gólfi. Eldhús er parketlagt með nýlegri innréttingu frá Rafha, góðu skápaplássi og rúmgóðum innbyggðum ísskáp sem fylgir eigninni. Ofn er í vinnuhæð og hiti í gólfi. Hjónaherbergið er mjög rúmgott með lausum skápum ásamt parket á gólfi. Barnaherbergið er rúmgott með parket á gólfi og tveimur gluggum. Baðherbergi er ljósri innréttingu með sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofn og flísum á gólfi. Þvottaherbergi er í innan íbúðar með flísum á gólfi. Bílskúrinn er rúmgóður með inngangshurð á hliðinni og björtum glugga. Nýlega var látin ný bílskúrshurð ásamt nýju þaki á skúrinn. Heitt vatn og rafmagn til staðar. Í kjallara er geymsla íbúðarinnar og sameiginlegt þvottahús. Nýlegar framkvæmdir samkvæmt seljanda: Farið í sprunguviðgerðir árið 2020. Nýtt skýli fyrir ruslatunnur byggt. Nýleg rafmagnstafla. Þakkantur í suðri og rennur lagaðar 2022. Tröppur fyrir framan útidyrahurð múraðar sumarið 2020. Sett var nýtt parket á íbúðina árið 2016. Eldhús fært til og sett upp snyrtileg eldhúsinnrétting frá Kvikk árið 2016. Sett upp sér þvottaherbergi í íbúðinni árið 2016. Stigi sem var í sérgeymslu var tekin og sett hurðarop, til að stækka geymsluna árið 2016. Sagað svalarop á stofu með nýrri hurð og settar upp suðursavalir á framanvert húsið árið 2016. Húsið er í göngufæri við skóla, leikskóla, allar helstu verslanir, bókasafn, heilsugæslu og Hamraborg svo sem fyrir almenningssamgöngur. Sundlaug Kópavogs í götunni ásamt Rútstúni.

Hvað er innifalið

Svalir
Bílskúr
Flatarmál119.9 m²
Herbergi3
Svefnherbergi2
Baðherbergi1

Staðsetning

Kortið hleðst bráðum

Hverfisgögn eftir beiðni

Staðir í nágrenninu hlaðast þegar þessi hluti birtist.

Auglýst á

MBL Fasteignir

89.900.000 kr.

Lánareiknivél

Áætluð mánaðargreiðsla

386.082 kr./mán

Útborgun20 % · 17.980.000 kr.
17.980.000 kr.71.920.000 kr. lán
Lánstími
Heildarendurgreiðsla138.989.560 kr.
Vextir5,00 %

Til viðmiðunar · Landomo er ekki fasteignalánamiðlari. · Vextir uppfærðir apríl 2026

Fyrirtæki

  • Um okkur
  • Fjölmiðlar
  • Gáttir

Skoða

  • Kaupa
  • Leiga
  • Skoða eftir staðsetningu
  • Leiðbeiningar
  • Rannsóknir
  • Algengar spurningar

Lögfræðilegt

  • Persónuverndarstefna
  • Þjónustuskilmálar
  • Vafrakökustefna
  • Útgáfuupplýsingar
landomo.is

© 2026 Landomo Real Estate. Allur réttur áskilinn.