# fjolb, Vorbraut 1, Garðabær

> Canonical listing: https://is.landomo.com/property/ef48edfc-0cae-4986-b9be-e2a3dbdb7f43

This is a compact, machine-readable representation of a public Landomo listing. Verify the canonical page before presenting the property as currently available.

## Listing facts

- **Status:** active
- **Transaction:** sale
- **Category:** apartment
- **Asking price:** 89,900,000 ISK
- **Location:** Garðabær, IS
- **Floor area:** 85.9 m²
- **Bedrooms:** 2
- **Published:** 2026-09-08T13:28:54.181Z
- **Last updated:** 2026-09-08T13:28:54.181Z
- **Listed on:** mbl-is

## Description

Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, hjá RE/MAX fasteignasölu, kynnir í sölu:
Nýjar og glæsilegar íbúðir í 7 íbúða lyftuhúsi að Vorbraut 1 í Hnoðraholti, 210 Garðabæ. Stærðir frá 85 fm til 176 fm.

✅ Gólfsíðir gluggar og gólfhiti
✅ Bjartar og vel skipulagðar íbúðir
✅ Fallegar innréttingar og innbyggð sturtutæki

// BÓKIÐ EINKASKOÐUN HJÁ ÞORSTEINI Í SÍMA 696-0226 //

Íbúð 102: Glæsileg þriggja herbergja íbúð á jarðhæð, ásamt stæði í bílageymslu. Svalalokun. Skráð stærð 85,4 fm.

Nánari lýsing:
Anddyri: Fataskápur upp í loft.
Svefnherbergi: Fataskápur upp í loft.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, falleg baðinnréttting, sturta með innbyggðum blöndunartækjum og glerskilrúmi, handklæðaofn og upphengt salerni. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara inn af baðherbergi.
Hjónaherbergi: Fataskápur upp í loft.
Stofa/borðstofa: Bjart rými.
Eldhús: Falleg innrétting með eyju, bakaraofn og spanhelluborð. Útgengt út á svalir með svalalokun.
Geymsla: Í sameign hússins.
Stæði í bílageymslu: Eitt sérmerkt stæði. Gert er ráð fyrir lagnaleið að stæðinu fyrir möguleika á rafhleðslustöð.

Helstu kostir við frágang:
** Við hönnun hússins er tekið mið af því að lágmarka viðhald. Húsið er einangrað að utan, álklætt að utan og gluggar ál-tré.
** Gólfsíðir gluggar sem veita mikla birtu inn í íbúðirnar. Gólfhiti í öllum rýmum íbúðar
** Innréttingar frá Ormsson ehf. og framleiddar af ARENS. AEG eldhústæki frá Ormsson.
** Í stofum eru lofttúður með innbyggðri hljóð- og ryksíu sem tryggja innstreymi og þar með hringrás lofts um íbúðina.

Húsið:
Arkitektar og aðalhönnuðir hússins eru Sen&Son arkitektar ehf. Húsið er steinsteypt þriggja hæða fjölbýlishús með 7 íbúðum í einum stigagangi með lyftu. Á 1. hæð er anddyri, geymslur íbúða, tæknirými og tveir innbyggðir bílskúrar. Á 1. hæð eru einnig tvær glæsilegar íbúðir með beinu aðgengi út í garð. Á 2. hæð hússins eru þrjár virkilega flottar íbúðir og á 3. hæð hússins eru svo tvær stórglæsilegar íbúðir, en með þeim fylgja bílskúrarnir. Á lóðinni er bílageymsla með 7 bílastæðum. Bílageymslan er opin að hluta með lokuðum hliðum og upphituðu gólfi. Gert er ráð fyrir lagnaleið að hverju stæði fyrir möguleika á rafhleðslustöð.

Umhverfið:
Húsið er staðsett í Hnoðraholti í Garðabæ. Hverfið er einstakt og nýstárlegt. Þá er hverfið sérlega vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins, miðsvæðis og í nálægð við góðar samgönguæðar. Í næsta nágrenni við húsið eru Vífilsstaðir, golfvöllur GKG, útivistarsvæði Heiðmerkur og nýja íþróttaaðstaða Stjörnunnar í Miðgarði.

Frekari upplýsingar veitir:
Þorsteinn Yngvason, lögmaður/ löggiltur fasteignasali, 696-0226 eða

## Source and attribution

- Cite and link: https://is.landomo.com/property/ef48edfc-0cae-4986-b9be-e2a3dbdb7f43
- Asking price and availability may change after this response was generated.
- Contact information and originating-portal links are available on the canonical page.
