listinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglistinglisting
landomo.isbeta
Heim/Ísland
Fleiri eignir í nágrenninu

Íbúð – Garðabær

Íbúð – Garðabær
Íbúð – Garðabær - Aðalmynd

2 herbergja til sölu, 79 m²

Garðabær

1 Svefnherbergi·1 Baðherbergi

74.670.000 kr.

950.000 kr./m²

Skráð 29. sep. 2026

Um þessa auglýsingu

Fasteignasalan TORG kynnir: Góð 2ja herbergja íbúð með sérafnotareit um 19,4fm inn í sameiginlegan garð. Íbúð merkt:0110, sem skilast fullbúin án gólfefna. Íbúðin er alls 78,6fm að stærð á 1. hæð í góðu lyftuhúsi. Íbúðin sjálf er skráð 70,0fm og skiptist í anddyri, alrými með eldhúsi og stofu með útgengi út á verönd, 1 svefnherbergi, gott baðherbergi, og sér geymslu í sameign merkt: 0036, skráð 8,6fm. ásamt bílstæði í bílakjallara merkt: B64. Allar nánari upplýsingar, teikningar, og skilalýsingu er hægt að nálgast með að hafa samband við Ragnar Guðmundsson, fasteignasala, GSM 844-6516, eða Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins HÉR Sækja söluyfirlit HÉR Vetrarbrautin er hluti af nýju hverfi við jaðar friðlandsins í Heiðmörk. Húsin eru í randbyggðarformi með fallegum inngarði. Íbúðir á jarðhæð hafa sérafnotareiti en íbúðir á efri hæðum eru með svalir. Einstök staðsetning við golfvöll GKG við Vífilstaði þar sem hægt er að bruna á golfbílnum beint úr frístundaskúrnum út á völl. Fallegar eignir þar sem áhersla er lögð á loftgæði og hefur hver íbúð sitt eigið loftskiptakerfi. Við hönnun innanhúss var horft til þess að halda innréttingum þannig að þær séu klassískar og tímalausar en jafnframt nútímalegar. Vandað var við val á eldhús- og blöndunartækjum. Næg bílastæði eru í bílakjallara og hverri íbúð fylgja 1 til 3 einkastæði. Þá fylgir hluta íbúðanna frístundaskúr eða bílskúr í bílakjallara. Tvö fjögurra hæða staðsteypt fjölbýlishús með inngarð. Samtals 72 íbúðir í 6 stigagöngum Tveggja hæða niðurgrafinn bílakjallari með geymslum, bílskúrum. Samtals 115 bílastæði á lóð og í bílakjallara. Húsin eru í svansvottunarferli. Utanhússfrágangur Klæðning: Flísar og álklæðning (báru og slétt), náttúrulegir jarðlitir. Þak: Þakplötur eru steinsteyptar og vatnshalli formaður í steypu. Viðsnúið með gróðurþekju, þykk einangrun og drenlag. Gluggar og hurðir: Ál/tré gluggar og hurðir, hvítir að innan og koxgráir að utan. Lóð: Fullfrágengin skv. landslagsuppdráttum, snjóbræðsla á gönguleiðum, rafhleðslurör í jörð, 2 hleðslustöðvar á lóð. Innanhússfrágangur Gólfefni: Baðherbergi og þvottahús flísalögð, annars afhent án gólfefna. Loft: Spörtluð og máluð; dúkloft í sumum þvottahúsum. Veggir: Léttir innveggir með steinull, rakavörn í votrýmum, allir veggir sandspartlaðir og málaðir. Hurðir: Yfirfelldar, hvítar hurðir frá Parka. Innréttingar: Frá VOKE-III, plastlagðar með kvarssteins borðplötum, svört handföng. Flísar: 60x60 Hitakerfi: Hefðbundið ofnakerfi, gólfhiti og handklæðaofnar á baðherbergjum. Loftskipti: Sér samstæða fyrir hverja íbúð. Raflagnir: Ljósleiðari, myndavéladyrasími, hvítir rofar og tenglar. Tæki og búnaður Eldhústæki (flest frá Siemens): Helluborð, ofn, ísskápur, uppþvottavél. Háfar: Falmec Sophie hangandi eða Bosch innbyggðir. Sameignir: Stigagangar: Málaðir veggir, teppalögð gólf, flísar í anddyri, burstuð stállyfta. Geymslur: Slípaðir og málaðir veggir/gólf með slitþolinni málningu. Hjólageymsla: Í hvoru húsi. Djúpgámar: 6 talsins, rusl flokkað skv. reglum Garðabæjar. Hönnun og framkvæmdir Arkitektar: Arkís arkitektar. Verkfræðihönnun: Þráinn & Benedikt, LX teiknistofa. Framkvæmdaraðili: Framkvæmdarfélagið Arnarhvoll. Sjá nánar skilalýsingu verkefnisins* Áætluð afhending er haust 2025

Hvað er innifalið

Lyfta
Bílskúr
Flatarmál78.6 m²
Herbergi2
Svefnherbergi1
Baðherbergi1

Staðsetning

Kort ekki tiltækt

Þessi auglýsing inniheldur ekki nákvæm hnit.

Auglýst á

MBL Fasteignir

74.670.000 kr.

Lánareiknivél

Áætluð mánaðargreiðsla

320.676 kr./mán

Útborgun20 % · 14.934.000 kr.
14.934.000 kr.59.736.000 kr. lán
Lánstími
Heildarendurgreiðsla115.443.275 kr.
Vextir5,00 %

Til viðmiðunar · Landomo er ekki fasteignalánamiðlari. · Vextir uppfærðir apríl 2026

Fyrirtæki

  • Um okkur
  • Fjölmiðlar
  • Gáttir

Skoða

  • Kaupa
  • Leiga
  • Skoða eftir staðsetningu
  • Leiðbeiningar
  • Rannsóknir
  • Algengar spurningar

Lögfræðilegt

  • Persónuverndarstefna
  • Þjónustuskilmálar
  • Vafrakökustefna
  • Útgáfuupplýsingar
landomo.is

© 2026 Landomo Real Estate. Allur réttur áskilinn.